07.11.2024
Framúrskarandi Sementsverksmiðja 2024
Sementsverksmiðjan er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2024 samkvæmt Creditinfo og það í áttunda sinn í röð. Til þess að ná slíkum árangri þarf að uppfylla ströng skilyrði og þau fyrirtæki sem komast á listann eiga það sameiginlegt að byggja rekstur sinn á traustum stoðum og leggja áherslu á að efla hag allra. Viðurkenningin byggist á ítarlegum mati á fjármálastöðu og rekstrarárangri og aðeins 2% fyrirtækja á Íslandi fá þessa heiðursviðurkenningu.
Þau skilyrði sem Framúrskarandi fyrirtæki þurfa að uppfylla eru:
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
- Ársreikningi skal skilað lögum samkvæmt eigi síðar en átta mánuðum eftir uppgjörsdag. Tekið verður tillit til allra opinberra framlenginga RSK á skilafresti
- Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
- Rekstrartekjur að lágmarki 60 milljónir króna reikningsárið 2023, 55 milljónir króna reikningsárið 2022 og 50 milljónir króna reikningsárið 2021
- Fyrirtæki með rekstrartekjur yfir 2 milljarða króna þurfa að fylla út spurningalista um sjálfbærni
- Framkvæmdastjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Rekstrarhagnaður (EBIT) > 0 reikningsárin 2021-2023
- Jákvæð ársniðurstaða reikningsárin 2021-2023
- Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% reikningsárin 2021-2023
- Eignir að minnsta kosti 120 milljónir króna reikningsárið 2023, 110 milljónir króna reikningsárið 2022 og 100 milljónir króna reikningsárið 2021
Að vera valin átta sinnum í röð undirstrikar metnaðarfullt starf, undirbúning og framtíðarsýn Sementsverksmiðjunnar sem öflugt starfsfólk fyrirtækisins sinnir. Sementsverksmiðjan hefur þannig skapað sér sess sem fyrirmyndarfyrirtæki í íslensku atvinnulífi og er sannarlega leiðandi í þróun sjálfbærra lausna í byggingariðnaði.
Við viljum þakka öflugum hóp starfsfólks ásamt traustum viðskiptavinum því án þeirra væri þetta ekki mögulegt. Við óskum einnig öllum öðrum Framúrskarandi fyrirtækjum til hamingju með árangurinn.
