Beint í efni
Mínar Síður

05.12.2024

Jólastjarnan lýsir upp skammdegið

Ein af ómissandi jólahefðum Sementsverksmiðjunnar er þegar jólastjarnan er sett upp. Stjarnan, sem trónir í um 38 metra hæð fyrir ofan sementssílóin, hefur lýst upp skammdegið og glatt íbúa Akraness samfellt í 65 ár.

„Nú mega jólin koma fyrir mér“ segir Lúðvík Þorsteinsson, afgreiðslustjóri Sementsverksmiðjunnar. Hann bætir við að uppsetning stjörnunnar sé alltaf hátíðleg stund hjá starfsfólki. Lúðvík sem hefur tekið þátt í að setja upp stjörnuna í 12 ár tekur fram að þetta starf sé ekki fyrir lofthrædda þar sem vinna þarf í tæplega 40 metra hæð. „Veðrið skiptir miklu máli, og það má ekki vera of hvasst. Í gær, þegar stjarnan fór upp, var brakandi blíða og allar aðstæður fullkomnar“ segir hann.

Lúðvík Þorsteinsson
Lúðvík Þorsteinsson

Stjarnan er jafnan sett upp fyrir fyrsta dag í aðventu og með því markar hún upphaf jólaðventunnar á Akranesi. Uppsetningin krefst nákvæms skipulags og tæknikunnáttu, en stór krani er fenginn til að hífa stjörnuna á sinn stað.

Í ár fékk stjarnan sérstaka yfirhalningu ásamt því að allur ljósabúnaður var yfirfarinn með aðstoð Rafstöðvarinnar. Jólastjarnan mun skína skært á Akranesi fram yfir áramótin og færa bæjarbúum hátíðlega birtu yfir jólahátíðina.

Dagsetning
05.12.2024
Deila