28.09.2026
Samkomulag við landeigendur í Lambafelli
Björgun-Sement og landeigendur Breiðabólsstaðar í Lambafelli við Þrengslaveg hafa komist að samkomulagi um að Björgun-Sement taki við námurekstri á svæðinu.
Breytingin tekur gildi 1. október næstkomandi og mun Björgun-Sement sjá um vinnslu og sölu malarefna úr námunni til viðskiptavina. Þar með bætist náman við rekstur fyrirtækisins í Þrengslum, en námurnar liggja hlið við hlið, og verða auðkenndar með Lambafell Suður og Lambafell Norður.
Markmið breytinganna er að efla rekstur og þjónustu með aukinni samnýtingu tækja, búnaðar og mannauðs, auk þess að tryggja áfram stöðugt framboð af vönduðum steinefnum.
Lögð verður sérstök áhersla á að yfirfærslan gangi hnökralaust fyrir sig og hafi sem minnst áhrif á viðskiptavini. Það er jafnframt ánægjuefni að starfsfólk sem starfað hefur við námuna, sem áður var á vegum ÍAV, heldur áfram störfum.
Þann 1. október verða vöruframboð og verðskrá, sem haldast óbreytt, aðgengileg á vefsíðunni www.bjorgunsement.is
