Beint í efni
Mínar Síður

17.07.2025

Umhverfisvænni sementsframleiðsla í Brevik skilar árangri

Sementsframleiðsla hjá framleiðanda okkar, Heidelberg Materials í Brevik í Noregi, heldur áfram að þróast í átt að sjálfbærari framtíð. Áhersla hefur verið lögð á að draga úr kolefnisspori við framleiðslu og þróun aðferða til að fanga koltvíoxíð úr útblæstri. Nú hefur náðst stór áfangi í þessum umbótum með nýrri tækni og tekist hefur að nýta varma úr útblæstri til að framleiða heitt vatn, sem dregur verulega úr orkunotkun og þar með kolefnisspori framleiðslunnar.

Nýjar umhverfisyfirlýsingar (EPD) gefnar út

Nýlega voru gefin út uppfærð umhverfisyfirlýsingarblöð (EPD) fyrir þær sementstegundir sem Sementsverksmiðjan flytur inn. Yfirlýsingarnar endurspegla lægra kolefnisspor og staðfesta árangurinn af þeim umhverfisverkefnum sem unnin hafa verið að á undanförnum árum. Samkvæmt nýjustu mælingum er kolefnisspor við framleiðslu eftirfarandi:

  • Standardsement FA: 451 kg CO₂ á hvert tonn af sementi
  • Anleggsement: 548 kg CO₂ á hvert tonn af sementi
  • Industrisement: 514 kg CO₂ á hvert tonn af sementi

Þessar tölur staðfesta þann árangur sem hefur náðst við að draga úr neikvæðum loftslagsáhrifum mannvirkjageirans og sýna skýrt fram á áhrif þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til.

Smelltu á hnappinn til að sjá nýjustu upplýsingar um kolefnisspor sements sem Sementsverksmiðjan flytur inn.

Dagsetning
17.07.2025
Deila