Beint í efni
Mínar Síður

03.09.2025

Árlegt golfmót starfsfólks

Starfsmannafélag fyrirtækisins hélt sitt árlega golfmót á Garðavelli á Akranesi laugardaginn 30. ágúst við frábærar aðstæður í logni og bongóblíðu.

Keppt var í fjögurra manna Texas Scramble og voru einnig veitt nándarverðlaun á öllum Par-3 brautið. Mótið var vel sótt og ríkti mikil stemning og gleði allan daginn. Þátttakendur nutu góðs matar að keppni lokinni og létu ekki sitt eftir liggja í að hrósa bæði veglegum verðlaunum og sérstaklega vinsælum teiggjöfum.

Golfmótið er ein af fjölmörgum uppákomum á vegum starfsmannafélagsins, en hjá fyrirtækinu er lögð áhersla á öflugt félagslíf og skemmtileg tækifæri til að hittast utan vinnu.

Sigurvegarar mótsins urðu þau Reynir, Hrund, Jón Smári og Bjarni.

Golfmót starfsmanna 2025
1. sæti: sæti: Reynir, Hrund, Jón Smári og Bjarni
Golfmót starfsmanna 2025
2. sæti: sæti: Daði, Brynja, Grétar og Guðný
Golfmót starfsmanna 2025
3. sæti: sæti: Guðleif, Arnar, Helga Fjóla og Bartosz

Veitt voru nándarverðlaun á fjórum Par-3 brautum.

Golfmót starfsmanna 2025
Nándarverðlaun hlutu þau Jón Smári, Guðný, Arnar og Björn.

Það var að sjálfsögðu smellt í hópmynd að móti lokni en í starfsmannafélaginu er starfsfólk frá Eignarhaldsfélaginu Hornsteini, BM Vallá og Björgun-Sement

Golfmót starfsmanna 2025
Golfmót starfsmanna 2025
Dagsetning
03.09.2025
Deila