10.10.2025
Björgun-Sement hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2025
Björgun-Sement hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), fimmtudaginn 9. október. Alls hlutu 128 fyrirtæki og stofnanir þessa viðurkenninguna.
Jafnvægisvogin er metnaðarfullt jafnréttisverkefni sem hefur það að markmiði að jafna kynjahlutföll í framkvæmdastjórnum og æðstu stjórnunarstöðum. Til viðurkenningar þurfa þátttakendur að ná markmiði verkefnisins um 40/60 kynjahlutfall í efsta lagi stjórnunar.
„Það er okkur mikilvægur áfangi að hljóta þessa viðurkenningu. Við lítum á jafnrétti sem grunnforsendu fyrir farsæla stjórnunarhætti og heilbrigða menningu innan fyrirtækisins. Þetta er ekki aðeins réttlætismál, heldur vitum við að fjölbreytt liðsheild nær betri árangri,“ segir Helga Fjóla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Hornsteins.

Viðurkenningarathöfnin Jafnvægisvogarinnar fór fram fimmtudaginn 9. október í Hátíðarsal Háskóla íslands. Þetta var í sjötta sinn sem athöfnin er haldin. Á þessum árum hefur fjöldi fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi stigið stór skref í átt að jafnrétti í efstu stjórnendastöðum.
Björgun-Sement og móðurfélagið Hornsteinn voru meðal 90 fyrirtækja sem hlut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA)

