Beint í efni
Mínar Síður

30.10.2024

Íslenskt móberg brýtur blað í vistvænni sementframleiðslu

Í vikunni var fyrsti farmurinn af íslensku móbergi sendur frá Björgun við Álfsnesvík til Svíþjóðar, þar sem það verður notað í sementframleiðslu Heidelberg Materials. Þetta markar mikilvægan áfanga bæði fyrir mannvirkjagerð á heimsvísu og íslenskan byggingariðnað, enda í fyrsta sinn sem móberg frá Íslandi er flutt út til framleiðslu á vistvænna sementi.

Móbergið, sem verður hluti af nýrri sementstegund Heidelberg Materials í Svíþjóð, kemur til með að draga verulega úr kolefnisspori sementsins sem er mikilvægt framfaraskref í átt að umhverfisvænni byggingariðnaði á heimsvísu. Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins, segir að þessi nýja aðferð hafi mikla möguleika á að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda og styðji þannig við vistvænni lausnir í byggingariðnaði.

Móbergið flutt yfir í skip.

Samsvarar fjórðungi af heildarlosun landsins

Þýski sementsframleiðandinn Heidelberg Materials stefnir á að vera leiðandi á heimsvísu varðandi sjálfbær byggingarefni og er liður af framtíðaráætlunum fyrirtækisins að reisa mölunarverksmiðju í Þorlákshöfn til að mala íslenskt móberg.

Með því að nota móberg í sementsframleiðslu og vinna það með endurnýjanlegri orku á Íslandi verða loftslagsáhrif sementsframleiðslunnar verulega minni, í raun og veru á skala sem sjaldan hefur sést áður í greininni. Fyrirtækið stefnir að því að flytja út allt að 60 þúsund tonn af móbergi á næsta ári, og er verkefnið því metnaðarfullt framlag í átt að vistvænni mannvirkjagerð.

Þorsteinn bætir við „Notkun móbergs í steypu hefur þann stóra umhverfislega ávinning að það dregur úr sementsþörf í steypu um 20%. Þar sem kolefnisspor móbergs með allri vinnslu og flutningi til Evrópu, er einungis um 4% af kolefnisspori hefðbundins sements, verður losun gróðurhúsalofttegunda töluvert minni. Ef 1,5 milljónir tonna af móbergi yrðu notuð í sementsframleiðslu, gæti það dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda um allt að 1,2 milljónir tonna á ári. Það jafngildir rúmlega 40% af heildarlosun Íslands að undanskilinni stóriðju og landnotkun, eða sem samsvarar liðlega fjórðungi af heildarlosun landsins eða nálægt því sem allur bílafloti landsmanna losar á ári.“ Hann bendir á að þessi áhrif á loftslagsmál á alheimsvísu séu gríðarlega mikilvæg og sýni hvernig nýsköpun og vistvænni lausnir geta haft veruleg áhrif á iðnaðinn og umhverfið.

Þorsteinn Víglundsson.

Ísland í lykilstöðu á alþjóðavísu

Heidelberg Materials hefur sett sér metnaðarfull markmið um að verða leiðandi á heimsvísu í framleiðslu vistvænni byggingarefna. Til að ná þessu markmiði er ein helsta áhersla fyrirtækisins að draga úr kolefnisspori sínu og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sementsframleiðslu. Í Noregi er Heidelberg Materials nú að undirbúa fyrsta verkefni sinnar tegundar á heimsvísu, þar sem kolefni verður fangað beint úr framleiðsluferlinu í sementsverksmiðju þeirra, og verður þessi nýja tækniþróun komið í framkvæmd á næsta ári. Þetta verkefni setur Ísland í öndvegi í framleiðslu og útflutningi á vistvænni byggingarefnum og skapar spennandi tækifæri fyrir frekari nýsköpunar. Heidelberg Materials er meirihlutaeigandi Eignarhaldsfélagsins Hornsteins sem á BM Vallá, Sementsverksmiðjuna og Björgun.

Frá hafnarþjónustu Björgunar við Álfsnesvík, starfsfólk við vinnu að moka móbergi í skip og sinna eftirlitsstörfum á steinefnum.

Dagsetning
30.10.2024
Deila