21.01.2026
Kveðjukaffi til heiðurs Gústa
Í dag kom saman góður hópur starfsfólks í kveðjukaffi til að heiðra Mikael Ágúst Guðmundsson, eða Gústa, sem lét af störfum í byrjun janúar eftir langan og farsælan starfsferil hjá fyrirtækinu.
Gústi starfaði hjá fyrirtækinu í rúm 14 ár og var ómetanlegur hluti af teyminu sem tækjastjórnandi í námu fyrirtækisins, Lambafelli í Þrengslunum. Þar sinnti hann fjölbreyttum verkefnum við mokstur, ýtuvinnu og móttöku hráefnis, viðgerðum á tækjum ásamt því að hafa umsjón með efnislager. Starfið í Lambafelli er oft á tíðum unnið við krefjandi aðstæður og lagði Gústi ávallt áherslu á vönduð vinnubrögð í daglegum störfum.
Við þetta tilefni var Gústa þakkað kærlega fyrir vel unnin störf og ánægjulegt samstarf í gegnum árin. Hann var leystur út með blómum og gjafabréfi og verður núna hluti af heiðursklúbbi fyrirtækisins, Gimsteinum, en það er hópur fyrrverandi starfsfólks sem hefur látið af störfum vegna aldurs. Markmið Gimsteina er að viðhalda tengslum, stuðla að félagslegri þátttöku og bjóða upp á áframhaldandi fræðslu og uppákomur.

