30.11.2023
Minningarbekkur
Það var hjartnæm stund við vígslu minningarbekkjar um þá Emil Pálsson, Guðmund Geir Jónssson, Kjartan Erlendsson og Torfa Ólafs Sölvason, skipverja sem fórust þegar Sandey II fórst þann 28. október 1983.
Sandey II var sanddælu- og dýpkunarskip í eigu Björgunar og var að dæla sandi af hafsbotni við Engey þegar skipinu hvolfdi skyndilega með þessum hörmulegu afleiðingum.
Það voru aðstandendur skipverjana sem höfðu veg og vanda að því að minningarbekkurinn yrði settur upp til heiðurs Emils, Guðmundar, Kjartans og Torfa í tilefni þess að fjörtíu ár eru liðin frá slysinu. Við vígslu bekkjarins komu saman aðstandendur og fjölskyldur skipverjana ásamt fulltrúum frá Björgun og Hornsteini, móðurfélagi Björgunar.
Minningarbekkurinn er staðsettur við Sæbrautina í Reykjavík, rétt fyrir neðan Höfða, en bekkurinn er framleiddur af BM Vallá. Það var Björgun sem færði bekkinn að gjöf.

