Beint í efni
Mínar Síður

02.12.2024

Nýtt flaggskip í flotann

Nýr og glæsilegur sementsvagn hefur bæst í flota Sementsverksmiðjunnar. Vagninn er af gerðinni Feldbinder EUT 40.3 og kemur frá Þýskalandi en þessi tegund er þekkt fyrir framúrskarandi gæði. Sementsvagninn mun styrkja enn frekar getu fyrirtækisins til að dreifa sementi til viðskiptavina sinna á öruggan og skilvirkan hátt.

„Við leggjum ríka áherslu á að þjónusta við viðskiptavini okkar sé bæði áreiðanleg og skilvirk, þar sem gæði og afhending á réttum tíma eru grundvallaratriði í okkar starfsemi. Enda nefna viðskiptavinir áreiðanleika sem einn af mikilvægustu þáttunum þegar kemur að þjónustu Sementsverksmiðjunnar.“ segir Gunnar H. Sigurðsson, framkvæmdastjóri.

Hann bætir við að Feldbinder EUT 40.3 sé háþróaður sílóvagn, sérstaklega hannaður til flutnings á lausu efni eins og sementi. Tankurinn er úr áli, sem stuðlar að minni eldsneytisnotkun og betri nýtingu eldsneytis. Hann rúmar um það bil 40 rúmmetra.

Sementsverksmiðjan flytur inn tvær mismunandi tegundir sements frá Heidelberg Materials Sement Norge í Noregi. Sementinu er dælt í geyma fyrirtækisins á Akranesi og Akureyri. Fyrirtækið leggur ríka áherslu á umhverfis- og loftslagsmál, sem endurspeglast m.a. í ISO 14001 umhverfisvottuðu stjórnkerfi þess. Sérstök áhersla er lögð á að draga úr kolefnisspori sementsins með nýsköpun á borð við kolefnisföngun í Noregi og notkun vistvænni íauka. Þessi nálgun tryggir að sementið sem fyrirtækið býður upp á hefur minnsta kolefnissporið sem völ er á á íslenskum markaði.

Gunnar H. Sigurðsson, framkvæmdastjóri.

Dagsetning
02.12.2024
Deila