Beint í efni
Mínar Síður

08.06.2026

Starfslok eftir 45 farsæl ár

Gunnar Hermann Sigurðsson hefur látið af störfum hjá Björgun-Sement eftir langan og farsælan feril innan Sementsverksmiðjunnar, síðar Björgunar-Sements.

Gunnar hóf störf hjá Sementsverksmiðjunni á Akranesi árið 1981 sem verkefnastjóri og kom þar að umfangsmiklum umbótum á framleiðsluferlum og uppbyggingu innviða. Meðal annars tók hann þátt í þróun og innleiðingu nýrra orkulausna og mengunarvarna sem höfðu veruleg áhrif á rekstur og árangur starfseminnar.

Á ferli sínum sinnti Gunnar fjölbreyttum stjórnunar- og lykilstöðum innan fyrirtækisins, þar á meðal sem viðhaldsstjóri, framleiðslustjóri og síðar við stjórn tæknimála. Árið 2005 tók hann við starfi framkvæmdastjóra Sementsverksmiðjunnar og gegndi því starfi undanfarna tvo áratugi, eða allt þar til Sementsverksmiðjan sameinaðist Björgun haustið 2025. Í kjölfar sameiningarinnar gegndi Gunnar hlutverki ráðgjafa fyrir framkvæmdastjórn, þar sem hann miðlaði áfram sinni víðtæku reynslu og þekkingu á rekstri og framleiðslutækni.

„Leiðir okkar Gunnars lágu saman fyrir allnokkrum árum og hefur verið afar ánægjulegt að vinna með honum,“ segir Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins. „Hann hefur stýrt Sementsverksmiðjunni með traustri hendi undanfarna tvö áratugi. Á tímum í afar krefjandi umhverfi. Hann er einstaklega skipulagður, úrræðagóður en ekki síst vandvirkur og faglegur í öllum sínum störfum, hefur létta lund og mikinn metnað, sem hefur skilað sér í frábærum árangri fyrir fyrirtækið í gegnum árin.“

Gunnar er menntaður vélvirki með meistararéttindi og véltæknifræðingur, auk náms á sviði rekstrar og viðskipta. Sú blanda tæknilegrar þekkingar og stjórnunarreynslu hefur verið lykilatriði í hans störfum fyrir fyrirtækið í gegnum árin.

Samstarfsfólk og stjórnendur Björgunar-Sements þakkar Gunnari fyrir hans mikilvæga framlag til fyrirtækisins og óskar honum velfarnaðar á nýjum tímamótum.

Gunnar ásamt eiginkonu sinni Arnbjörgu.
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins, hélt kveðjuræðu fyrir Gunnar.
Þorsteinn afhendir Gunnari kveðjugjöf.
Þorsteinn afhendir Gunnari kveðjugjöf.
Gunnar ásamt samstarfsfólki hjá Björgun-Sement.
Dagsetning
08.06.2026
Deila