27.08.2025
Taktu stefnuna í rétta átt
Við óskum eftir stýrimanni á Álfsnes RE, sem notað er til að afla steinefna til vinnslu í landi og sinnir jafnframt dýpkunar og landgerðarverkefnum. Kostur ef viðkomandi býr yfir þekkingu á sanddælingu og efnisvinnslu
Stýrimaður stendur vaktir í brú á móti skipsstjóra í vaktakerfi 6 og 6 þar sem unnið er í tvær vikur og tvær vikur frí.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýring og ábyrgð á siglingu skipsins í samráði við skipstjóra.
- Umsjón með dælingum og stjórnun á vöktum (6 & 6 vaktakerfi).
- Skipulagning og framkvæmd viðhaldsverkefna, þar á meðal skipti á dælurörum og almenn viðhaldsvinna.
- Eftirlit með öryggisbúnaði og trygging þess að öryggisreglur séu virtar.
- Þátttaka í daglegum rekstri skipsins og góð samvinna við áhöfn.
- Aðstoð við skipstjóra við stjórnun og ákvarðanatöku.
Menntunar- og hæfniskröfur
Sjá nánari upplýsingar í starfsauglýsingu.
- Réttindi sem stýrimaður á skipum að 3000 BT (STCW II/2 eða D2 samkvæmt norska kerfinu).
- Reynsla af stjórnun stærri skipa er æskileg.
- Góð þekking á dælingarbúnaði og viðhaldi skips.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi.
- Hjálpsemi, sveigjanleiki og góð mannleg samskipti eru lykilatriði.
- Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta nauðsynleg.
Dagsetning
27.08.2025Deila