29.05.2024
Athafnasvæðið þótti sérlega snyrtilegt
Nýverið fékk Björgun um 20 manna hóp frá Steinsteypufélag Íslands í heimsókn á nýtt athafnasvæði sitt við Álfsnesvík. Markmið ferðarinnar var að kynna sér uppbyggingu á svæðinu og fræðast um steinefnaframleiðslu fyrirtækisins. Að lokum var farið í skoðunarferð um svæðið og gengu gestir upp í stóra, háþróaða og afkastamikla vinnslusamstæðu þar sem hægt er að njóta einstaks útsýnis yfir sundin blá.
Okkur þótti mjög ánægjulegt að taka á móti þessum góðu gestum sem höfðu orð á því hversu snyrtilegt þetta stóra athafnasvæðið er.
Takk fyrir komuna!



Dagsetning
29.05.2024Deila