Beint í efni
Mínar Síður

26.09.2025

Þrjú ljúka stjórnendanámi

Þrír framkvæmdastjórar innan okkar raða luku nýverið við Management Development Programme (MDP), árlegu stjórnendanámi Heidelberg Materials í Norður-Evrópu. MDP er haldið í samstarfi við Chefakademin og miðar að því að efla leiðtogahæfni stjórnenda á þremur sviðum: að leiða sjálfan sig, að leiða aðra og að leiða fyrirtækið. Í ár luku 21 stjórnandi náminu sem lauk með hátíðlegri útskriftarathöfn í Sigtunahöjden, Stokkhólmi.

Ari Elísson, framkvæmdastjóri framleiðslusviðs Björgunar-Sements, var einn af þremur stjórnendum sem luku náminu og segir hann reynsluna hafa verið afar dýrmæta. „„Námið sameinar fræðilega þekkingu og hagnýt verkefni sem nýtast stjórnendum í daglegum verkefnum. Mér þótti mjög gagnleg sú nálgun að byggja upp eigin leiðtogafærni sem grunn að árangursríkri forystu. Þjálfunin skerpti betur á leiðtogahlutverkinu og hvernig er hægt að skapa öflugt og gott starfsumhverfi fyrir teymið.

Ari Elísson, framkvæmdastjóri framleiðslusviðs hjá Björgun-Sement.

Samferða Ara í náminu voru tveir framkvæmdastjórar innan raða Hornsteins og dótturfélaga, Sirrý Ósk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri umhverfis- og gæðasviðs Hornsteins og Steingrímur Jónsson, framkvæmdastjóri húseiningasviðs BM Vallár. Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með þennan frábæra áfanga.

Þrír íslenskir framkvæmdastjórar ljúka MDP-þjálfun Heidelberg Materials
Þrír íslenskir framkvæmdastjórar ljúka MDP-þjálfun Heidelberg Materials
Dagsetning
26.09.2025
Deila