23.02.2026
Verðskrárbreyting á flutningskostnaði
Breyting verður á gjaldskrá flutningskostnaðar sements frá Björgun-Sementi frá og með 1. mars 2026.
Vegna aðgerða stjórnvalda um síðustu áramót í tengslum við kílómetragjald er nú gripið til 6% hækkunar á flutningskostnaði sements frá og með 1. mars 2026.
Markmið okkar er ávallt að gæta gagnsæis í verðlagningu og tryggja að gjaldskrár endurspegli raunverulegan kostnað hverju sinni. Vegna þess var beðið með verðskrárbreytingar á flutningskostnaði fyrr en áhrif og framkvæmd gjaldtökunnar lægju fyrir að öllu leyti.
Dagsetning
23.02.2026Deila